UM

Þú finnur verslun Bernharð Laxdal í Skipholti, Reykjavík

Bernharð Laxdal er elsta starfandi kvennfataverslun landsins, en fyrirtækið var stofnað á Akureyri af klæðskeranum Bernharð Ladal árið 1938.

Fyritækið flutti til Reykjavíkur þegar fyrsti stórmarkaður landsins tók til starfa haustið 1960, í Kjörgarði við Laugavegi 59 í Reykjavik, með rúllustigum og hvaðeina, opnaði Bernharð Laxdal þar glæsilega verslun á annari hæð.

Margir tryggir viðskiptavinir verslunarinnar, eiga hlýjar minningar frá þeim tíma, þegar fermingarkápan var keypt hjá Bernharð Laxdal í Kjörgarði.

Árið 1982 flutti verslunin í þá nýbyggt glæsilegt húsnæði á götuhæð við Laugavegi 63.

Í Mai 2001 tóku núverandi eigendur Guðrún R. Axelsdóttir og Einar Eiríksson við rekstrinum, en fram að þeim tíma hafði fyrirtækið verið í eigu sömu fjölskyldu.

Eftir eigendaskiptin var verslunin innréttuð frá grunni, með nýjum glæsilegum innréttingum, frá einum helsta birgja fyrirtækisins, hinum þekkta þýska kvennfata hönnuði, Gerry Weber. Hinar vel hönnuðu og hagkvæmu innréttingar, hafa gert það mögulegt að auka vöruúrvalið, og bæta nýjum birgjum í hópinn.

Auk Gerry Weber, Taifun hafa bæst við Betty Barclay og í yfirhöfnum hið vel þekkta CINZIA-ROCCA, sem famleiðir hágæða Ítalskar ullarkápur, 100% ull, Kasmír ull og stórglæsilegar Alpacha kápur, fáguð Ítölsk hönnun, þar sem hverju smáatriði er fylgt eftir. Einnig selur verslunin Creenstone kápurnar, sem eru gríðarlega vandaðar og eru allt í senn kápa og úlpa, og eru bæði vind og vatnsvarðar og henta því einstaklega vel fyrir íslenska veðráttu. FUCH/SHMITT, er mjög vandað þýskt vörumerki sem er þrautreynt í útvistaryfirhöfnum,og njótum við góðs af því í framleiðslu þeirra á vönduðum yfirhöfnum til allra venjulegra nota.
JUNGE er danskt, líka vandað og einstaklega framsækið og fylgist vel með nýjustu tískunni í framleiðslu sinni. Glæsilegar dúnúlpur m/ekta skinni, fisléttir dúnjakkar og kápur m/hettu, og margt fleira, sem er alltaf nýjsta tískan og glæsilegt.

Vegna mikilla breytinga á rekstrarumhverfi miðborgarinnar flutti verslunin í mun stærra, stórglæsilegt húsnæði að Skipholti 29, 17. mars 2017. Hefur flutningur verslunarinnar reynst gæfuspor og fagna viðskiptavinirnir stórbættu aðgengi.

Í Laxdal er áherslan enn sem fyrr á klassískann gæðafatnað. Frá ábyrgum aðilum með sterka samfélagsvitund sem talar inn í tíðarandann.

Okkar metnaður er að veita persónulega og faglega þjónustu og það hefur reynst vera lykillinní að velgengni verslunarinnar, sem á fjölmarga trygga viðskiptavinni til áratuga, sem kunna að meta og njóta vandaðra vöru sem endist.

Bernharð Laxdal talar sterkt inní samtímann, bíður vandaðar vörur á sanngjörnu verði.

Verslunin er í alfaraleið, með næg bílastæði, marga mátunarklefa og þjónustu sem er markviss gengur greiðlega – FLJÓTLEGRA EN NETVERSLUN OG ALLT PASSAR SVO VEL.

Í áranna rás hefur Bernharð Laxdal verið leiðandi í verlsun á yfirhöfnum á íslenskum markaði og svo mun verða áfram.

Á seinni árum hefur áherslan aukist á allan almennan kvennfatnað og sérstaklega á buxur og fullyrðum við að í Laxdal er mesta úrvalið af alla veganna síðbuxum fyrir kvenfólk frá hinum heimsþekktu framleiðendum Gardeur, Gerry Weber og Betty Barclay.
Einnig hefur Laxdal boðið fallegar Baisc dragtir, svartar og dökkbláar, 3 snið af jökkum, 3 snið af buxum, pilsum og kjólar, þar sem allt passar saman. Þessar dragtir eru mjög vinsælar sem vinnudargtir og fyrir ýmsan félagsskap, en einnig eru þær góður grunnur í fataskápinn, sem kemur sér vel við flestar aðstæður,

FRANK LYMAN, GLÆSIKJÓLARNIR, eru mjög fallegir, FYRIR ALLAR VEISLUR OG VIÐBURÐI.

Í Laxdal er andrúmsloftið ljúft og þægilegt og þér veitt sú þjónusta sem þú óskar eftir. Finndu endanlegar lausnir fyrir fataskápinn og þá fjölbreytni sem gæðir líf þitt og bætir.