Rain Couture – Dúnjakki & vesti

57,900 kr.

Leiðbeiningar við kaup.
1. veldu lit (jafnvel þótt aðeins sé gefinn upp einn litur) og veldu stærð
2. Smelltu á hnappinn „setja í körfu“
Nú geturðu valið að ganga frá kaupum eða velja fleiri vörur.
3. Óskir þú gjafainnpökkunar, skrifar þú óskina í athugasemdir í kaupferlinu.

Fallegur og hagnýtur dúnjakki með belti frá hollenska gæðamerkinu Rain Couture.
Jakkann má nota einan og sér og hentar íslenskri veðráttu einstaklega vel. Fullkomin vor/haust flík.
Einnig er hann hugsaður til að nota undir rykfrakka á köldum dögum.
Auk þess er hægt að renna ermunum af og nota sem vesti.

Eiginleikar:
-Hlýr
-Vatnsvarinn (þrátt fyrir dúninn)
– Hetta í kraganum
-Lyklakippukrækja

Rain Couture er nýlegt tískumerki frá Hollandi. Frumkvöðullinn á bakvið merkið er hin unga Daphne Gerritse. Sagan á bakvið Rain Couture er sú að Daphne átti í erfiðleikum með að finna sér yfirhöfn sem stóðust allar hennar kröfur. Hún vildi yfirhöfn sem var ekki of köld, ekki of heit og ekki of ljót. Hún ákvað að taka málin í sínar hendur og við tók fimm ára þróunarferli, þar sem hún leitaði uppi bestu efnin, munstrin og hönnun fyrir merkið sitt Rain Couture. Markmiðið var að hanna heilsársyfirhafnir, fyrir sem flest veðurskilyrði og við öll tækifæri. Hollenska frumkvöðlinum tókst svo sannarlega ætlunarverk sitt og nýtur Rain Couture mikilla vinsælda í Evrópu og fer merkið ört vaxandi.

Þú gætir einnig haft áhuga fyrir...